Afmæliskaka á Háskólatorgi í tilefni af 100 ára afmæli HÍ

Afmæliskaka á Háskólatorgi.

Þann 6. október var boðið upp á afmælisköku á sviði Háskólatorgs kl. 14:00. Stúdentaráð var á staðnum og sá um að útdeila kökunni. Kökuboðið var tilkomið vegna 100 ára afmælis Háskóla Íslands. Hér að neðan er hægt að skoða ljósmyndir.

Rebekka Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi Félagsstofnunar Stúdenta, sagði að margir hafi mætt og bragðað á gómsætri köku, sem skreytt hafi verið með 100 ára afmælismerki Háskóla Íslands.

„Þetta var hálfgerð upphitun fyrir föstudaginn 7. okt. en þá bjóða SHÍ, Félagsstofnun stúdenta og Landsbankinn stúdentum við HÍ á tónleika á Nasa. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30, húsið opnar kl. 20. Fram koma Úlfur Úlfur, Kiriyamo family, Búdrýgindi, Mammút, Retro Stefson og Agent Fresco. Aðgangur er ókeypis gegn framvísun stúdentakorts,“ segir Rebekka.

deila á facebook