Nanótækni við meðhöndlun á krabbameini

Í lokaþættinum er rætt við Vivek og leiðbeinanda hans, Má Másson prófessor.

Rannsókn á nýrri meðhöndlun krabbameins, sem Vivek S. Gaware doktorsnemi við Háskóla Íslands vinnur að frekari þróun á í samstarfi við erlenda aðila, hefur vakið gríðarlega athygli í Bretlandi. Fjallað var um rannsóknina í breska blaðinu The Times fyrir nokkru og það verður einnig gert í lokaþætti vísindaraðarinnar Fjársjóður framtíðar sem sýnd verðu á RÚV. Í lokaþættinum er rætt við Vivek og leiðbeinanda hans, Má Másson prófessor.

Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa góð fyrirheit um að unnt sé að vinna bug á ýmsum krabbameinum á höfði og hálsi sem áður voru talin ill- eða ólæknanleg. Rannsóknin er á vegum Norsks fyrirtækis, PCI Biotech og er unnin af læknum við University College Hospital í London.   Rannsóknin snýst um að beita nýrri tækni til krabbameinsmeðferðar. Ellefu sjúklingar með langt komin krabbamein tóku þátt í rannsókninni. Nýju rannsóknalyfi, Amphinex, var sprautað í æð nokkrum dögum áður en sjúklingurinn hlaut hefðbundna lyfjameðferð. Amphinex hefur þá náttúru að örva ljósstýrða upptöku lyfja í krabbameinsfrumur. Í kjölfar lyfjameðferðarinnar  var ljósi beint að krabbameinsæxlinu og við það jókst til muna virkni lyfjameðferðarinnar. Meðhöndluð æxli hurfu og engar alvarlegar aukaverkanir komu fram í rannsókninni.  Einn níu starfsmanna PCI Bioteche er Vivek S. Gaware, doktorsnemi við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, en leiðbeinandi í verkefni hans er Már Másson prófessor. Rannsóknaverkefni Viveks miðar að frekari þróun á þessari nýstárlegu meðferð. Norska fyrirtækið á í samvinnu við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og er með starfsstöð hér á landi. 

deila á facebook