Ljósmyndagallerí
- Hátíðarmessa í kapellu Háskóla Íslands
Þann 1. desember var hátíðarmessa haldin í kapellu Háskóla Íslands. Sr.Sigrún Óskarsdóttir þjónaði fyrir altari, Halla Rut Stefánsdóttir lokaársnemi við guðfræðideild flutti predikun, organisti var Guðný Einarsdóttir og Kvennakór HÍ undir stjórn Margrétar Bóasdóttur flutti aðventutónlist.
- Stúdentar héldu fullveldisdaginn hátíðlegan
Dagskráin 1. desember í ár hófst á því að stúdentar gengu frá Háskóla Íslands að leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði þar sem blómsveigur var lagður á leiðið að viðstöddum Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og Kristínu Ingólfsdóttur, rektor HÍ. Þá flutti Guðfinnur Sveinsson, stúdent, hugvekju og hópur úr Háskólakórnum flutti lag. Hátíðahöld stúdenta héldu svo áfram á á Háskólatorgi kl. 12:00. Þar mun forseti Íslands ávarpar gesti, Félagsstofnun stúdenta afhenti styrki og Gleðisveit Lýðveldisins lék m.a. jólalög.
- Hátíð brautskráðra doktora
Þann 1. desember 2011 efndi Háskóli Íslands í fyrsta sinn til Hátíðar brautskráðra doktora í Hátíðasal Aðalbyggingar. Þar tóku þeir doktorsnemar, sem varið hafi ritgerðir sínar við Háskóla Íslands undanfarið ár, við gullmerki háskólans að viðstöddum forseta Íslands, menntamálaráðherra, rektor háskólans, forsetum fræðasviða og deildarforsetum. Stefnt er að því að hátíðin verði árlegur viðburður hér eftir.
- UNESCO vottar tungumálamiðstöð SVF
Alþjóðleg tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands hefur fengið samþykki Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, til að starfa undir formerkjum hennar. Í vottun UNESCO felst mikil viðurkenning á störfum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og stuðningur við framtíðaráform hennar. Efnt verður til samkeppni um hönnun byggingar fyrir tungumálamiðstöðina og aðra starfsemi stofnunarinnar og er stefnt að því að hún verði tekin í notkun árið 2014.
- Nýsköpunarmessa HÍ - Afhending Hagnýtingarverðlauna HÍ
Nýsköpunarmessa Háskóla Íslands fór fram í þriðja sinn, á aldarafmæli Háskóla Íslands. Við sama tækifæri voru hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands veitt. Nýsköpunarmessunni er m.a. ætlað að virkja nemendur Háskólans til nýsköpunar og að veita næstu kynslóð frumkvöðla innan skólans innblástur og hvatningu til að hrinda hugmyndum í framkvæmd. Hagnýtingarverðlaun HÍ voru einnig veitt á Nýsköpunarmessu. Hagnýtingarverðlaunin eru veitt á grundvelli samkeppni sem hefur það að markmiði að laða fram hagnýtanlegar hugmyndir nemenda og kennara.
- 12. Gönguferð HÍ og FÍ - Tugthúsmeistarinn, bjórbann, strípibúllur og fyrsti dómsalurinn
Þann 12. nóvember var ganga með Helga Gunnlaugssyni, prófessor við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Gangan hófst við Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu sem einu sinni var notað sem fangageymsla. Gengið var um miðbæinn framhjá sögufrægum öldurhúsum og endað í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg þar sem fyrsti dómsalurinn er til húsa. Stutt kynning var á því sem fyrir augu bar á hverjum stað.
- Erindi dr. Henry Petroski, öndvegisfyrirlesara Verkfræði- og náttúruvísindasviðs
Öndvegisfyrirlesari Verkfræði- og náttúruvísindasviðs var Dr. Henry Petroski, prófessor í byggingarverkfræði og sagnfræði við Duke háskólann í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Hann flutti fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla Íslands laugardaginn 29. október sem bar yfirskriftina „Success and Failure in Engineering: A Paradoxal Relationship“. Dr. Henry Petroski er margverðlaunaður vísindamaður og vel þekktur fyrir að skýra verkfræðilega hönnun og nýsköpun á aðgengilegan hátt.
- Erindi dr. Nemat Shafik, aðstoðarframkvæmdastjóra Alþjóða gjaldeyrissjóðsins
Dr. Nemat Shafik, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, flutti föstudaginn 28.október erindi í Hátíðasal Háskóla Íslands í tilefni aldarafmælis skólans. Erindi þessa næstæðsta manns AGS var hluti af röð hátíðarfyrirlestra rektors á afmælisárinu og bar það yfirskriftina „Global Economic Challenges and Fostering Future Prosperity".