Myndbönd

Frjálsasta þjóð í heimi

Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, hóf ávarp sitt með orðunum: Félagar í hruninu. Hann velti fyrir sér frasanum „Frjálsasta þjóð í heimi“ í fyrirlestri sínum og hvort hægt væri að rekja hrunið til sögu landsins og sjálfsmyndar þjóðarinnar. Hann benti á að Íslendingar virtust tengja frelsið og frelsisbaráttuna afar sterkt við þjóðarímyndina.

Dagana 26.–30. apríl 2010 voru haldnir opnir umræðufundir í Háskóla Íslands undir yfirskriftinni Uppgjör, ábyrgð og endurmat: Lærdómar af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Markmiðið með fundunum var að draga fyrstu lærdóma af niðurstöðum skýrslunnar og koma með ábendingar um mikilvæg framtíðarverkefni. Málshefjendur komu úr hagfræðideild, lagadeild, sagnfræði- og heimspekideild , stjórnmálafræðideild og viðskiptafræðideild HÍ.

deila á facebook