Myndbönd
Lögin og eftirlitið
Hér á landi virðist hafa ríkt skortstefna á undanförnum árum; skortur á lögum, skortur á að þeim væri fylgt og skortur á eftirliti með að þeim væri fylgt! Þetta var meðal þess sem kom fram í erindi Eiríks Jónssonar, lektors við Lagadeild HÍ.
Dagana 26.–30. apríl 2010 voru haldnir opnir umræðufundir í Háskóla Íslands undir yfirskriftinni Uppgjör, ábyrgð og endurmat: Lærdómar af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Markmiðið með fundunum var að draga fyrstu lærdóma af niðurstöðum skýrslunnar og koma með ábendingar um mikilvæg framtíðarverkefni. Málshefjendur komu úr hagfræðideild, lagadeild, sagnfræði- og heimspekideild , stjórnmálafræðideild og viðskiptafræðideild HÍ.

- Afmælismyndbönd
-
- Lifandi myndir háskólafólks
-
- Fyrirlestraraðir
-
- Nemendamyndbönd
-