Myndbönd
Opið hús í Háskóla Íslands
Háskóladagurinn – Opið hús í Háskóla Íslands, laugardaginn 19. febrúar milli kl. 11 og 16
Háskóli Íslands býður landsmönnum á öllum aldri í heimsókn laugardaginn 19. febrúar þar sem í boði verða ótal viðburðir, kynningar og uppákomur sem sýna vísindin í litríku og lifandi ljósi.
Gestir geta kynnt sér fjölbreytt námsframboð háskólans, bæði grunn- og framhaldsnám, starfsemi og þjónustu, skoðað rannsóknastofur, tæki, búnað og húsakynni. Á staðnum verða vísindamenn og nemendur úr öllum deildum skólans sem svara spurningum um allt milli himins og jarðar – eða því sem næst.
Opið verður í Aðalbyggingu, Háskólatorgi, Gimli, Odda og Öskju. Að sjálfsögðu verður Sprengjugengið landsfræga með litríkar sýningar í Háskólabíói! Gestir geta tekið þátt í happdrætti þar sem glæsilegir vinningar verða í boði.

- Afmælismyndbönd
-
- Lifandi myndir háskólafólks
-
- Fyrirlestraraðir
-
- Nemendamyndbönd
-