Myndbönd
Var Jón Sigurðsson sjálfstæðishetja?
Viðtal við Guðmund Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, um erindi sem hann flytur á málþingi um þjóðhetjuna og þjóðríkið í tilefni 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar.
Haldið verður málþing um þjóðhetjuna og þjóðríkið í tilefni 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar á vegum Háskóla Íslands, Sagnfræðistofnunar og Afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar 27. maí 2011. Málþingið fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands frá kl. 13:00 til 16:00 og er liður í 100 ára afmælisdagskrá HÍ. Þar velta íslenskir fræðimenn á sviði sagnfræði, lögfræði og bókmennta fyrir sér spurningum um hvernig þjóðhetja Jón Sigurðsson var, hvaða hlutverki þjóðhetjur gegna og hvort þjóðir þurfi á hetjum að halda.
Erindi Guðmunds verður flutt frá 13:10–13:40 og ber titilinn: ,,Var Jón Sigurðsson sjálfstæðishetja?“ Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.

- Afmælismyndbönd
-
- Lifandi myndir háskólafólks
-
- Fyrirlestraraðir
-
- Nemendamyndbönd
-