Vísindaþættir HÍ

Fjársjóður framtíðar - Þriðji þáttur

Sýndur þriðjudaginn 22. nóvember kl. 20:40

Í lokaþætti vísindaraðarinnar Fjársjóður framtíðar fylgjumst við með rannsóknum vísindamanna Háskóla Íslands á bankahruni, samfélagsróstum, kreppu, kerfisbreytingum, siðferði og ímynd Íslands.  

Í lokaþættinum beinum við sjónum að rannsóknum sem tengjast íslenskri framtíð. Leitað er að hugmyndum unga fólksins um lýðræði og mannréttindi og við heyrum um rannsóknir á sjálfsstjórn barna.

Náttúra Íslands er rík af undrum og auðlindum og til rannsóknar eru þau einstöku áhrif sem hún kveikir í vitund ferðamanna.  Við beinum líka sjónum að íslenskum þjóðháttum og fáum við svör við því hvort Íslendingar trúi enn á tilvist álfa.

Áhorfendur Sjónvarpsins skyggnast jafnframt inn í heim skinnhandritanna í lokaþættinum og fá að kynnast rannsóknum á þessum merka þjóðararfi. 

Við reynum líka að grafast fyrir um hvaða máli vísindin skipti okkur á nýrri öld og hvort rannsóknir séu í raun fjársjóður framtíðar á Íslandi.

deila á facebook
  • Vísindaþættir í nærmynd
<<<Síða 1/2>>>