Háskóli unga fólksins í fullum gangi

Um 300 krakkar á aldrinum 12-16 ára settust á skólabekk í Háskóla Íslands mánudaginn 6. júní þegar Háskóli unga fólksins var settur í áttunda sinn. Skólinn stendur yfir dagana 6. - 10. júní og er nemendum boðið upp á fjölbreytt námskeið í greinum sem kenndar eru við Háskóla Íslands. Að setningu lokinni hófst kennsla en hún fer fram víða á háskólasvæðinu. Nemendur gátu valið á milli 36 námskeiða og hafa þeir sjálfir raðað saman sinni eigin stundatöflu. Meðal námskeiða sem kennd eru í skólanum eru stjörnufræði, sjúkraþjálfun, japanska, sálfræði, franska, frumkvöðlafræði, lögfræði og jarðfræði.

Kennsla fer fram á milli kl. 9 og 15 alla dagana en miðvikudaginn 8. júní er þemadagur þar sem nemendur hafa valið sér eina námsgrein fyrir allan daginn. Háskóla unga fólksins lýkur föstudaginn 10. júní með veglegri lokahátíð á Háskólatorgi.

Háskóli unga fólksins hefur verið starfræktur í júnímánuði allt frá árinu 2004 og óhætt er að segja að það lifni yfir háskólasvæðinu þegar fróðleiksfúsir og fjörugir krakkar leggja það undir sig. Námskeiðin sem hafa verið kennd við Háskóla unga fólksins skipta mörgum tugum og brautskráðir nemendur skólans eru hátt í tvö þúsund.

Skólinn er með óvenju viðamiklu sniði í ár þar sem Háskóli Íslands fagnar aldarafmæli á árinu. Þannig hefur Háskóli unga fólksins farið um landið með Háskólalestinni svokölluðu síðustu vikur og heimsótt fimm bæjarfélög. Þar hefur grunnskólanemum verið boðið upp á valin námskeið úr skólanum og bæjarbúum á hverjum stað boðið í vísindaveislu. Háskólalestin heldur áfram ferð sinni í ágúst.

deila á facebook