Söngur og saltfiskur, ganga um Vesturbæinn

Helgi Þorláksson, sagnfræðingur.

Þann 9. júní næstkomandi býður Ljósmyndasafn Reykjavíkur í samstarfi við Háskóla Íslands upp á gönguferð um Grjótaþorpið og gamla Vesturbæinn með Helga Þorlákssyni, sagnfræðingi. Þar verður saga tónlistar, hljómlistamanna, söngvara, kóra og tónskálda rakin. 

„Reykvíkingar tóku upp alls kyns nýjungar í atvinnulífi og lífsháttum á bilinu 1870-1920. Eitt af bindunum í hinu mikla verki, Saga Reykjavíkur, nefnist td. Bærinn vaknar og þar er fjallað um þennan tíma. Skýringar á breytingunum eru ma. saltfiskur og skútuútgerð, ótti við nýjungar var á undanhaldi og um 1900 fannst mörgum að flestir vegir væru færir sem til framfara horfðu,“ segir Helgi og bætir við að áhugi á nýjum tónmenntum hafi verið geysimikill sem birtist ma. í aðdáun á orgelleik og kórsöng í Dómkirkjunni og stofnun kóra til söngs utan kirkna. „Meðal nýjunga voru samhæfður, raddaður kórsöngur, sönglagagerð, leikið var á fyrrum óþekkt hljóðfæri, hljómsveitir voru stofnaðar  og menntaðir einleikarar og einsöngvarar komu fram,“ segir Helgi og tekur fram að áhrifin hafi borist frá Reykjavík og breyttu tónlistarlífi víða um land.

Ætlunin er að ganga um Grjótaþorp og áfram um Vesturbæinn og stansa við heimili merkra frumkvöðla á umræddu sviði, skoða ljósmyndir sem tengjast þessari sögu, hlýða á tónlist og taka lagið. Gangan tekur um 1 og 1/2 tíma en lagt verður af stað frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.

Helgi Þorláksson kennir sagnfræði við Háskóla Íslands og hefur fjallað töluvert um sögu Reykjavíkur í kennslu sinni. Hann ólst upp vestast í Vesturbænum og hefur áður veitt hópum leiðsögn um sögu hans, ma. í samvinnu við Ljósmyndasafn Reykjavíkur og haft þaðan myndir meðferðis.

Nánar má lesa um gönguferðina í viðburðadagatali skólans hér:

deila á facebook