2001
Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Hornafirði stofnað
Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Hornafirði formlega stofnað 30. nóvember þetta ár. Meginviðfangsefni fræðasetursins eru rannsóknir á sviði umhverfismála og náttúruverndar, einkum í tengslum við ferðaþjónustu og starfsemi á friðlýstum svæðum. Við setrið eru einnig stundaðar rannsóknir á jöklum og loftslagsbreytingum, bókmenntum og listum og í þjóðfræði.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum sett á laggirnar
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er rannsóknastofnun innan Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands. Stofnunin var sett á laggirnar í október 2001 í tengslum við 90 ára afmæli Háskóla Íslands og evrópska tungumálaárið. Stofnunin ber nafn Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, og hefur hún notið mikilvægrar liðveislu hennar í uppbyggingarstarfi sínu.
Borgarfræðasetur tekur til starfa
Borgarfræðasetur tekur til starfa en það starfaði samkvæmt samstarfssamningi milli Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar. Borgarfræðasetur var sjálfstæð rannsóknastofnun sem gekkst fyrir rannsóknum á sviðum borgarfræða m.a. með samanburði borgar- og byggðaþróunar á Íslandi og í öðrum löndum.
Sagnanetið opnað
Sagnanetið opnað 2. júlí þetta ár. Sagnanetið er samvinnuverkefni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Cornell-háskóla í Bandaríkjunum með þátttöku Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi. Sagnanetið veitir aðgang um Netið að stafrænum myndum af u.þ.b. 240.000 blaðsíðum handrita og um 153.000 blaðsíðum prentaðra rita.
90 ára afmæli Háskóla Íslands
Efnt til sérstakrar afmælisviku í byrjun október, 90 árum eftir að kennsla hófst í Háskóla Íslands. Stúdentar hleyptu af stokkunum þjóðarátaki í þágu Háskólans, Morgunblaðið gaf út veglegan blaðauka um sögu Háskólans og stöðu hans í íslensku samfélagi og Sjónvarpið sýndi heimildamyndina, „...ábyrgðin á framtíð þjóðar vorrar...“ Úr sögu Háskóla Íslands, sem gerð var í tilefni afmælisins.
Rektor Háskóla Íslands boðaði til Háskólahátíðar í Háskólabíói föstudaginn 5. október. Páll Skúlason rektor flutti ávarp og Björn Bjarnason menntamálaráðherra flutti hátíðarræðu. Síðan flutti Þorvarður Tjörvi Ólafsson formaður Stúdentaráðs einnig ávarp. Rektorar háskóla í menningarborgum Evrópu árið 2000, sem voru heiðursgestir Háskóla Íslands á 90 ára afmæli skólans, tóku þátt í Háskólahátíðinni. Viðurkenningar voru veittar starfsmönnum Háskóla Íslands og veittar voru sex heiðursdoktorsnafnbætur.
Ýmsum afmælum fagnað við HÍ
Á árinu var ýmsum stórafmælum innan Háskólans fagnað, auðvitað 90 ára afmæli skólans sjálfs og 90 ára afmæli heimspekideildar.
- 60 ára afmæli viðskipta- og hagfræðideildar
- 50 ára afmæli kennslu í uppeldis- og kennslufræði fyrir kennaraefni
- 40 ára afmæli Háskólabíós
- 30 ára afmæli sálfræðikennslu við háskólann
- 30 ára afmæli Háskólakórsins
- 25 ára afmæli félagsvísindadeildar
- 25 ára afmæli kennslu í sjúkraþjálfun
- 20 ára afmæli kennslu í félagsráðgjöf
- 20 ára afmæli Námsráðgjafar Háskólans
- 15 ára afmæli Stofnunar Sigurðar Nordals
- 10 ára afmæli Rannsóknastofu í kvennafræðum
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands tekur til starfa
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands formlega stofnuð 31. ágúst þetta ár en hafði þá raunar starfað í um tvö ár. Upphaf Kennslumiðstöðvar má rekja til verkefnahóps um fjarkennslu sem var settur á laggirnar að tilstuðlan Páls Skúlasonar, þáverandi rektors. Árið 1998 veitti menntamálaráðuneytið Háskóla Íslands fjárframlag til eflingar upplýsingatækni innan skólans.