1957
Stúdentar fá einn fulltrúa í háskólaráð
Með lögum settum þetta ár fengu stúdentar einn fulltrúa í háskólaráði. Frá árinu 1978 fjölgaði síðan fulltrúum stúdenta í fjóra en auk þeirra áttu sæti í ráðinu háskólarektor, deildarforsetar og tveir fulltrúar Félags háskólakennara. Með lögum um Háskóla Íslands frá 1999 fækkaði aftur í ráðinu og stúdentar fengu þá tvo fulltrúa sem kosnir voru beint af stúdentum.
Almenningssími í Aðalbyggingu HÍ
Almenningssíma komið upp í anddyri Aðalbyggingar Háskóla Íslands að beiðni Stúdentaráðs.
Stúdentaráð 1957-1958
Stúdentaráð háskólaárið 1957–1958.
Frá vinstri:
- Magnús Þórðarson laganemi
- Hörður Sævaldsson tannlæknanemi
- Ólafur G. Einarsson laganemi
- Bogi Melsteð læknanemi
- Birgir Ísleifur Gunnarsson laganemi, formaður ráðsins.
Þessir voru allir fulltrúar Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta.
- Leifur Jónsson læknanemi, frá Félagi frjálslyndra stúdenta
- Emil R. Hjartarson læknanemi, frá Stúdentafélagi jafnaðarmanna
- Guðmundur Guðmundsson læknanemi, frá Félagi róttækra stúdenta
- Ólafur Pálmason íslenskunemi, frá Þjóðvarnarfélagi stúdenta.
Myndin birtist í Stúdentablaðinu 34. árg., 4. tbl., (1. des. 1957), bls. 21. Myndin er úr Þjóðminjasafni.
Image