1914
Húsakynni Háskólans á neðstu hæð alþingishússins
Rýmisskipting Háskóla Íslands í Alþingishúsinu:
- 1. Kennslustofa guðfræðideildar.
- 2. Kennslustofa læknadeildar. Á síðustu árum háskólakennslu í Alþingishúsinu voru heimspekileg forspjallsvísindi einnig kennd í þessari stofu.
- 3. Geymsluherbergi fyrir læknadeild (líffæra- og lyfjasafn o.fl.).
- 4. Herbergi sem stúdentar munu gjarnan hafa kallað „fýlu“ eða „fílu“. Það mun hafa verið notað sem geymsla undir söfn læknadeildar, a.m.k. seinustu ár háskólans í þessu húsi.
- 5. Fatahengi.
- 6. Geymsluherbergi fyrir læknadeild.
- 15. Kennarastofa.
- 16. Kennslustofa lagadeildar.
- 17. Kennslustofa heimspekideildar.
Image