1990
Rannsóknanám við Háskóla Íslands
Háskólaráð samþykkti 8. febrúar þetta ár breytingar á reglugerð sem heimilaði skipulagt doktorsnám. Þar er háskóladeildum heimilt að skipuleggja doktorsnám í einstökum kennslugreinum sem lýkur með doktorsprófi. Reglugerðin styrkti forsendur til rannsóknanáms við Háskóla Íslands.
Stundakennarar við Háskóla Íslands fara í verkfall
Stundakennarar við Háskóla Íslands fara í verkfall veturinn 1990-1991. Brugðist var við þessu með því að ráða kennara í sérstakar tímabundnar lektorsstöður og með aukinni yfirvinnu fastráðinna kennara og sérfræðinga Háskólans.
Upplýsingadeild við Háskóla Íslands stofnuð
Upplýsingadeild við Háskóla Íslands stofnuð og kynningarfulltrúi í hlutastarfi ráðinn árið 1993.
Byggingarframkvæmdir við Odda
Þetta ár var síðari hluti Odda tekinn í notkun. Í byggingunni eru kennslustofur, tölvuver, kaffistofa nemenda, skrifstofur og starfsemi tengd Félagsvísindasviði Háskóla Íslands.
Afgreiðsla Lánasjóðs íslenskra námsmanna
Myndasyrpan er af starfsfólki Lánasjóðs íslenskra námsmanna á Laugavegi 77 og nemendum sem þangað komu.
Úr starfi Háskólabókasafns
Myndasyrpa úr starfi Háskólabókasafns árið 1990.
Á fremstu myndinni í syrpunni eru, frá vinstri:
- Edda Snorradóttir
- Óskar Árni Óskarsson
- Þorleifur Jónsson
- Ingibjörg Árnadóttir
- Auður Gestsdóttir
- Sólveig Ögmundsdóttir
- Þórir Ragnarsson
- Hólmfríður Svavarsdóttir
- Elísabet Ruth Guðmundsdóttir
- Sigríður Lára Guðmundsdóttir
- Siglinde Sigurbjarnarson
- Elfa Kristinsdóttir
- Gabriele Blunck
- María Huld Jónsdóttir
- Áslaug Agnarsdóttir
- Sigbergur Friðriksson
- Þórný Perrot
- Einar Sigurðsson háskólabókavörður
- Guðrún Karlsdóttir
- Barbara Belle Nelson
- Ingibjörg Sæmundsdóttir
- Halldóra Þorsteinsdóttir
- Sigurður Egill Garðarsson
- Karl Ágúst Ólafsson
- Jóhanna Skaftadóttir
Mynd úr safni Háskólabókasafns.