1945

Stúdentaráð beitir sér í málefnum stúdenta

Stúdentaráð berst fyrir því að stúdentar fái greitt kaup fyrir verklegt nám og fær því framgengt að laganemum sem stunda verklegt nám hjá opinberum dómendum yrðu greiddar 800 krónur í mánaðarkaup. Ráðið skipulagði sams konar réttindabaráttu fyrir stúdenta úr öðrum deildum háskólans.

Kennsla í tannlæknisfræði hefst

Kennsla hefst í tannlæknisfræði þetta ár.

Á myndinni sjást nemendur í tannlæknafræði. Myndin er líklega tekin á 9. áratug 20. aldar.

Image
Nemendur í tannlæknisfræði

Útgáfa blaðsins Vér mótmælum allir

Stúdentafundur haldinn um herstöðvarmálið, stúdentaráð stendur í kjölfarið að útgáfu blaðsins Vér mótmælum allir ásamt öllum stjórnmálafélögum innan háskólans og Stúdentafélagi Reykjavíkur.

Image
Forsíða blaðsins Vér mótmælum allir, gefið út árið 1945