1977

Ráðgjafanefnd háskólaráðs um nýbyggingar

Ráðgjafanefnd háskólaráðs um nýbyggingar á háskólalóð skilar viðamikilli skýrslu í júní um húsnæðisþarfir háskólans á tímabilinu 1977-1981, eða „Gráu skýrslunni“ eins og hún var nefnd. Samkvæmt erindisbréfi var nefndarmönnum ætlað að leysa tvö verkefni: að lýsa húsnæðisaðstöðu skólans á háskólalóðinni og brýnustu þörfum næstu fimm árin og að benda á leiðir til að fullnægja húsnæðisþörfum háskólans innan ramma fjárveitinga til nýbygginga.

Í byrjun nóvember ályktaði háskólaráð svo um „forgangsröðun bygginga á háskólalóð“ og um framtíðarhúsnæðismál háskólans og nýtingu og hafði þá skýrslu nefndarinnar til hliðsjónar.

Kvenfrelsisbaráttan gerð að umræðuefni við hátíðahöld stúdenta

Kvenfrelsisbaráttan gerð að umræðuefni við hátíðahöld stúdenta á fullveldisdaginn, 1. desember, þetta ár. Ræður dagsins af þessu tilefni fluttu Bjarnfríður Leósdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir.

Pólitískur andi stúdenta

Stúdent virðir fyrir sér kosningaáróður á veggjum inni í húsi Félagsstofnunar stúdenta við Hringbraut.

Myndin er tekin í mars 1977. Ljósmyndari: Gunnar Elísson. Myndin er úr ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Image
Stúdent virðir fyrir sér kosningaáróður á veggjum inni í húsi Félagsstofnunar stúdenta við Hringbraut

Nemendur í Lögbergi

Nemendur tala saman í Lögbergi í mars 1977. Ljósmyndari: Gunnar Elíasson. Myndin er úr Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Image
Nemendur tala saman í Lögbergi í mars 1977