1993

Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands tekur til starfa

Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands tekur til starfa um haustið.

Tillögur um reykingarbann á háskólasvæðinu

Frá og með þessu ári eru lagðar fram margar tillögur þess efnis að banna reykingar á háskólasvæðinu. Reykingabannið komst síðar á árið 1996 samkvæmt lögum um að reykingar séu óheimilar á stöðum sem heyri stjórnsýslulega undir menntamálaráðuneytið.

Sumarannir stúdenta

Árið 1993 samþykkir háskólaráð tillögu Guðmundar Birgissonar, fulltrúa stúdenta, um sumarönn fyrir þá stúdenta sem ekki ættu kost á atvinnu. Ári síðar var enn samþykkt tillaga formanns Stúdentaráðs um að boðið væri upp á námskeið sumarið 1994. Þótt ekki hafi verið tekin upp skipuleg sumarönn í öllum námsgreinum var nokkuð um námskeið á sumrin ekki síst fyrir erlenda stúdenta.

Rannsóknanámssjóður til styrktar nemendum í framhaldsnámi

Hinn 8. október þetta ár eru staðfestar reglur um Rannsóknanámssjóð til styrktar nemendum í framhaldsnámi við Háskóla Íslands. Sjóðurinn var í fyrstu á vegum menntamálaráðuneytisins og aðeins fyrir nemendur í Háskóla Íslands enda framhaldsnám ekki í boði í öðrum háskólum. Síðar var sjóðurinn færður til Rannís og opnaður nemendum í rannsóknatengdu framhaldsnámi í öllum skólum á háskólastigi.

Póstkort af háskólahverfinu

Póstkort sem fylgdi með þjónustunámskeiði fyrir starfsfólk í stjórnsýslu Háskóla Íslands í nóvember þetta ár. Á myndinni sést háskólahverfið og nöfn bygginga eru merkt inn á það. Kortið var gefið út af Litbrá hf.

Image
Loftmynd af háskólasvæðinu árið 1993

Auglýsing um opið hús

Auglýsing um opið hús haldið sunnudaginn 21. mars þetta ár í Háskóla Íslands og öðrum háskólum. Opna húsið varð síðar að árlegum viðburði, Háskóladeginum.

Image
Blaðaauglýsing um opið hús í Háskóla Íslands og öðrum háskólum sunnudaginn 21. mars 1993