2007

Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum

Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum hefur starfsemi í nóvember þetta ár og hefur tvær starfsstöðvar: í Bolungarvík og á Patreksfirði. Háskóli Íslands, Náttúrustofa Vestfjarða og Bolungarvíkurkaupstaður eru samstarfsaðilar og skipa stjórn setursins ásamt fulltrúa frá Fjórðungssambandi Vestfjarða.

Styrkjakerfi komið á fót fyrir aðstoðarkennara úr Rannsóknasjóði háskólans

Styrkjakerfi komið á fót fyrir aðstoðarkennara úr Rannsóknasjóði háskólans. Markmiðið er að gera framhaldsnemum kleift að annast hóflega kennslu samfara rannsóknaverkefnum sínum. Sama ár var í fyrsta sinn úthlutað doktorsstyrkjum úr Rannsóknasjóðnum, annars vegar gátu leiðbeinandi og nemandi sótt saman um styrk og hins vegar eingöngu leiðbeinandi.

Hornsteinn lagður að Háskólatorgi

Hornsteinn að Háskólatorgi Háskóla Íslands lagður við athöfn á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Í hólki hornsteinsins, sem er úr ryðfríu stáli, er merki Háskóla Íslands og teikningar af byggingunum, bæði prentaðar og á minnislykli, ásamt sögu Háskólatorgs frá því að hugmyndin kom fyrst fram og allt til þess að hornsteinninn var lagður.

Háskólatorg, Gimli og Tröð vígðar

Háskólatorg, Gimli og Tröð voru vígðar með viðhöfn laugardaginn 1. desember árið 2007. Byggingarnar eru samtals um 10.000 fermetrar. Háskólatorg er á milli Aðalbyggingar og Íþróttahúss háskólans. Þar er að finna veitingasölu, stóra fyrirlestrarsali og rúmgott alrými. Þar er einnig þjónustuborð fyrir nemendur og gesti Háskólans.

Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Húsavík

Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Húsavík var stofnað þetta ár í kjölfarið á því að snemma árs 2004 hófu Þekkingarsetur Þingeyinga og Náttúrustofa Norðausturlands markvissa vinnu að því að koma upp sérfræðiþekkingu á sviði sjávarspendýra.

Image
Á Húsavík er unnið að því að koma upp sérfræðiþekkingu á sviði sjávarspendýra

Miðstöð munnlegrar sögu tekur til starfa

Miðstöð munnlegrar sögu tekur til starfa í janúar. Miðstöðinni er ætlað að efla munnlega sögu sem aðferð í sagnfræði. Hún veitir fræðslu um söfnun og notkun munnlegra heimilda, skapar fræðimönnum aðstöðu til rannsókna og stendur fyrir fræðilegri umræðu um munnlega sögu.

Miðstöð munnlegrar sögu er samstarfsvettvangur Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands, Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands (áður Kennaraháskóla Íslands) í samvinnu við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn.

Á myndinni sést hljóðver Miðstöðvar munnlegrar sögu fyrir framan Þjóðarbókhlöðuna á menningarnótt í Reykjavík í ágúst 2007. Á árunum 2007-2009 vann miðstöðin að verkefninu Borgarsögur í samstarfi við Reykjavíkurborg og notaði garðhýsi sem hreyfanlegt hljóðver og kom því fyrir á ýmsum stöðum í borginni á menningarhátíðum.

Image
Hljóðver Miðstöðvar munnlegrar sögu fyrir framan Þjóðarbókhlöðuna á menningarnótt í Reykjavík í ágúst 2007

Félagsstofnun stúdenta flytur starfsemi í Háskólatorg

Félagsstofnun stúdenta flytur alla starfsemi sína í Háskólatorg og opnar þar Bóksölu stúdenta og nýjan veitingastað, Hámu.

Image
Háskólatorg, séð að utan

Háskóli Íslands gerist aðili að Keili

Háskóli Íslands gerist aðili að Keili – miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Keflavíkurflugvelli í maí þetta ár. Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almenningssamtaka. Keilir byggist upp á fjórum mismunandi skólum: Háskólabrú, sem er undirbúningsnám fyrir háskólanám, Heilsuskóla Keilis, Orku- og tækniskóla Keilis og Flugakademíu Keilis. Skólinn hefur aðsetur þar sem áður var varnarsvæði bandaríska hersins í Reykjanesbæ.

Keilir er hlutafélag og meðal eigenda hans eru Háskóli Íslands, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, ýmsar rannsóknastofnanir, orku- og fjármálafyrirtæki, sveitarfélög, almenningssamtök, flugfélag og verkalýðsfélög.

Image
Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs