2008

Fjölgun námsgreina og aukinn nemendafjöldi

Námsárið 1990-1991 voru 42 námsgreinar í boði á 99 námsleiðum með alls 1.512 námskeiðum. Á námsárinu 2008-2009, tæpum tveimur áratugum seinna, voru námsgreinarnar orðnar 88, á samtals 485 námsleiðum og námskeið við Háskóla Íslands 4.600 talsins á námsárinu.

Áramótin 2008/2009 bregst Háskóli Íslands við efnahagskreppunni sem reið yfir með því að taka inn ríflega 1.400 nemendur en aldrei fyrr höfðu jafnmargir nemendur skráð sig í nám um áramót. Haustið 2009 hafði nemendum því um fjölgað 20% frá haustinu áður.

ECTS-einingar teknar upp við Háskóla Íslands

Frá 1. júlí miðast námseiningar í kennsluskrá við svonefndar ECTS-einingar þar sem 5 eininga námskeið samkvæmt eldra kerfi teljast nú 10 ECTS-eininga námskeið og BA- og BS-nám, sem talið hafði verið 90 einingar áður, er metið til 180 ECTS-eininga.

Rannsóknastöðustyrkir veittir

Rannsóknastöðustyrkir, sem ætlaðir eru vísindamönnum sem hafa lokið doktorsprófi á síðastliðnum fimm árum, veittir í fyrsta sinn. Átta styrkir voru veittir til allt að þriggja ára og gátu akademískir starfsmenn háskólans sótt um þá í samstarfi við nýdoktora. Jafnframt var í fyrsta skipti úthlutað styrkjum til ráðstefnuferða fyrir meistara- og doktorsnema sama ár.

Ýmis stórafmæli þetta ár

Lagadeild fagnaði því 1. október að 100 ár voru liðin frá því að lagakennsla hófst á Íslandi. Í tilefni af afmælinu gekkst deildin fyrir fjölbreyttri afmælisdagskrá með hátíðarmálþingi, ráðstefnum og málstofum með helstu fræðimönnum lögfræðinnar á Íslandi og erlendum gestum.

Kennaraháskóli Íslands fagnaði aldarafmæli sínu 7. júní með veglegri hátíð í Borgarleikhúsinu, en þá voru liðin 100 ár frá setningu fyrstu fræðslulaga og stofnun Kennaraskóla Íslands. Við þetta tækifæri voru brautskráðir fyrstu þrír doktorarnir frá skólanum og lýst kjöri heiðursdoktora. Efnt var til sýningar í Þjóðarbókhlöðunni í maí í tilefni af 100 ára afmælinu og gefið út veglegt afmælisrit.

Hinn 14. nóvember var haldin vegleg athöfn í Hátíðarsal í tilefni af því að 70 ár voru liðin frá upphafi kennslu í viðskiptafræði og hagfræði á Íslandi. Við þetta tækifæri var lýst kjöri þriggja heiðursdoktora.

Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands hélt upp á 25 ára afmæli sitt í október með fjölbreyttri afmælisdagskrá. Starfsemi Endurmenntunarstofnunar hefur eflst með ári hverju og hefur hún aldrei verið fjölbreyttari og öflugri en nú.

Í tilefni af 20 ára afmæli Tæknigarðs var í nóvember haldin afmælishátíð og jafnframt veitt hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands fyrir bestu tillögur að verkefnum sem geta orðið að gagni í íslensku samfélagi. Á þeim 20 árum sem Tæknigarður hefur starfað hefur hann fóstrað mikinn fjölda sprotafyrirtækja sem mörg hver hafa orðið að öflugum og framsæknum þekkingarfyrirtækjum.

Einnig var afmælisnefnd Háskóla Íslands skipuð á þessu ári til þess að starfa að undirbúningi aldarafmælis skólans árið 2011.

Sameining Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands

Hinn 1. júlí sameinast Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Íslands og um leið tók gildi nýtt skipulag og stjórnkerfi hins sameinaða háskóla. Í stað 11 deilda er Háskóla Íslands nú skipað í fimm fræðasvið, Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið. Hvert fræðasvið skiptist í 3-6 deildir og eru deildirnar 25 alls.

Image
Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Íslands sameinuðust þann 1. júlí 2008.

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta stofnaður

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands stofnaður árið 2008 til að styrkja afburðanemendur til náms við skólann og var fyrst úthlutað úr honum í júní það sama ár.

Myndin er frá úthlutun úr Afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands 2010.

Image
Úthlutun úr Afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands 2010

Jafnréttisskólinn og Edda – öndvegissetur í jafnréttis- og margbreytileikafræðum

Jafnréttisskólinn og Edda – öndvegissetur í jafnréttis- og margbreytileikafræðum stofnuð. Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum hefur veg og vanda af þessum verkefnum.

Image
Jafnréttisskólinn og Edda – öndvegissetur í jafnréttis- og margbreytileikafræðum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Kristín Ingólfsdóttir

Bernhard Örn Pálsson hlýtur 2,4 milljóna evra styrk

Bernhard Örn Pálsson, gestaprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í lífverkfræði við University of California, hlýtur 2,4 milljóna evra styrk frá Evrópska rannsóknaráðinu. Styrkurinn rann alfarið til Háskóla Íslands og var þá stærsti rannsóknastyrkur sem komið hafði til skólans. Styrkurinn var nýttur til að koma á stofn Rannsóknasetri í kerfislíffræði við Háskóla Íslands. Setrið er samstarfsverkefni Heilbrigðisvísindasviðs og Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.

Image
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og dr. Bernhard Örn Pálsson, gestaprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í lífverkfræði við University of California.

Nýr ytri vefur Háskóla Íslands opnaður

Nýr ytri vefur Háskóla Íslands opnaður 1. júlí þetta ár. Er vefurinn liður í því markmiði í stefnu Háskóla Íslands að efla upplýsingatækni við skólann. Menntamálaráðherra opnaði nýja vefinn við hátíðarsamkomu á Háskólatorgi í tilefni af sameiningu Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands. Vefurinn endurspeglar nýtt skipulag hins sameinaða Háskóla Íslands. Samhliða var unnið að þróun innri vefs og Uglu.

Image
Vefteymi Háskóla Íslands árið 2008

Fyrsti stúdentinn sem lauk doktorsprófi sameiginlega frá Háskóla Íslands og háskóla erlendis

Doktorsverkefni Mathieus Fauvel, „Spectral and Spatial Methods for Classification of Urban Remote Sensing Data“, fjallar um nýjar aðferðir í flokkun fjarkönnunarmynda. Myndin er tekin eftir doktorsfyrirlestur hans 19. febrúar 2008. Frá vinstri: Jocelyn Chanussot, prófessor við INP í Grenoble, Mathieu Fauvel, Jón Atli Benediktsson, prófessor við rafmagns- og tölvuverkfræðiskor verkfræðideildar Háskóla Íslands.

Fyrsti stúdentinn sem lauk doktorsprófi sameiginlega frá Háskóla Íslands og háskóla erlendis var Mathieu Fauvel, verkfræðingur. Hann stundaði námið við INP í Grenoble í Frakklandi og Háskóla Íslands og brautskráðist í rafmagnsverkfræði 19. febrúar 2008.

Image
Jocelyn Chanussot, prófessor við INP í Grenoble, Mathieu Fauvel, Jón Atli Benediktsson, prófessor við rafmagns- og tölvuverkfræðiskor verkfræðideildar Háskóla Íslands

Konfúsíusarstofnunin Norðurljós stofnsett og samstarf aukið við kínverska háskóla

Konfúsíusarstofnunin Norðurljós stofnsett þann 16. maí þetta ár. Hún er meðal 280 sambærilegra stofnana sem starfræktar eru við háskóla um allan heim. Tilgangur stofnunarinnar er að styðja við nám í kínverskri tungu, sem og fræðslu um kínverska menningu og samfélag.

Háskóli Íslands undirritar formlega samstarfssamninga við nokkra helstu skóla í Kína. Við Háskóla Íslands er nú boðið upp á kínversk fræði sem aðalgrein og Austur-Asíufræði sem aukagrein og að auki má nefna að japönsk fræði sem aðalgrein eru einnig kennd við skólann.

Image
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós opnuð 16. maí 2008