Háskólasvæðið vorið 1940
Tillaga til framtíðarskipulags á háskólalóðinni eftir Guðjón Samúelsson

Yfirlit um vísindastarf við Háskóla Íslands

Háskóli Íslands gefur út ítarlega skrá um rit allra kennara sem starfað höfðu við skólann frá stofnun til ársins 1940. Flest það sem birst hafði á prenti er talið þar upp, allt frá minningargreinum í dagblöðum til umfangsmikilla vísindarita. Skráin er gott yfirlit yfir vísindastarf við skólann fyrstu áratugina sem hann starfaði.

Vígsla Aðalbyggingar

Háskólinn flytur í sitt eigið húsnæði, Aðalbygginguna, hinn 17. júní og nýtt og viðburðaríkt framfaratímabil hefst. Húsnæðisskortur hafði haft veruleg áhrif á háskólastarfið áður. Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, teiknaði bygginguna.

Frá vígslu Aðalbyggingar Háskóla Íslands 17. júní 1940. Ræðuhöld í Hátíðarsal

Vígsla háskólakapellu

Við vígslu háskólakapellu þann 16. júní 1940. Kapellan var vígð degi á undan Aðalbyggingu Háskóla Íslands, þar sem hún er staðsett.

Við vígslu háskólakapellu þann 16. júní 1940. Fyrir altari standa Sigurgeir Sigurðsson, biskup Íslands og Magnús Jónsson, prófessor. Ásmundur Guðmundsson, prófessor situr til hliðar. Ljósm: Vignir.
Byggingarnefnd Háskólans 1940
Sigurbjörn Einarsson, síðar biskup, við kennslu í Háskóla Íslands þann 16. júní árið 1940.
Deila