1995

Háskóli Íslands kaupir Nýja-Garð

Háskóli Íslands kaupir Nýja-Garð af Félagsstofun stúdenta undir starfsemi sína. Einnig kaupir skólinn Neshaga 16 fyrir skrifstofur kennara og stofnana.

Image
Nýi-Garður

Reykherbergi bönnuð í Háskóla Íslands

Stúdentar ræða málin fyrir framan anddyri Hátíðasals. Á þessum tíma mátti reykja í háskólanum en bann við reykingum var ákveðið frá 1. janúar 1995. Á myndinni sést öskubakki á borðum.

Image
Stúdentar ræða málin fyrir framan anddyri Hátíðasals. Á þessum tíma mátti reykja í háskólanum en bann við reykingum var ákveðið frá 1. janúar 1995. Á myndinni sést öskubakki á borðum.

Nemendur við Endurmenntunarstofnun

Hópur nemenda sem lauk þriggja ára námi í rekstrar- og viðskiptagreinum við Endurmenntunarstofnun árið 1995. Fremst sitja Valdimar K. Jónsson, prófessor og stjórnarformaður stofnunarinnar, Sveinbjörn Björnsson, rektor Háskóla Íslands, og Margrét Björnsdóttir, endurmenntunarstjóri háskólans.

Fyrsta útskrift djákna

Myndin er tekin eftir fyrstu útskrift djákna við Háskóla Íslands í háskólakapellu þann 4. febrúar þetta ár. Að athöfninni í kapellunni lokinni fögnuðu nýju djáknarnir ásamt velunnurum í stofu guðfræðideildar á 2. hæð í Aðalbyggingu.

Image
Myndin er tekin við fyrstu útskrift djákna við Háskóla Íslands í háskólakapellu 4. febrúar 1995. Nýir djákna fagna áfanganum.