Fyrsti námsráðgjafinn ráðinn til HÍ

Fyrsti námsráðgjafinn ráðinn til Háskóla Íslands. Skrifstofa hans fékk síðar nafnið Náms- og starfsráðgjöf þar sem starfsmenn veita ráðgjöf og þjónustu frá upphafi til enda háskólanáms. Skrifstofan heldur m.a. utan um námstækninámskeið, náms- og prófkvíðanámskeið og áhugasviðspróf og hefur sérstaka umsjón með þeim nemendum skólans sem þarfnast sértæks stuðnings við nám sitt.

Þjónustan hefur einnig verið opin fyrir aðra en nemendur Háskóla Íslands. Meistaranemar í námsráðgjöf fá verklega kennslu og starfsþjálfun á skrifstofunni.

Félag umbótasinnaðra stúdenta stofnað

Félag umbótasinnaðra stúdenta stofnað og haslar sér völl í stúdentapólitíkinni.

Deildarráð læknadeildar frá c.a. 1981-1983
Lögreglumenn handsama hest fyrir utan Stúdentaheimilið við Hringbraut árið 1981
Deila