1912

Titill
Stúdentar í Alþingisgarðinum árið 1912

Text

Myndin var tekin árið 1912 að loknu „fíluprófi“ (prófi í forspjallsvísindum) í garði Alþingishússins, en þar var Háskóli Íslands til húsa til ársins 1940. Á myndinni eru:

Efri röð frá vinstri:

  • Árni Jónsson frá Múla ristjóri og alþingismaður
  • Steindór Gunnlaugsson lögfræðingur
  • Páll Pálmason ráðuneytisstjóri
  • Jakob Kristinsson fræðslumálastjóri
  • Vilmundur Jónsson landlæknir og alþingismaður
  • Axel Böðvarsson bankaritari
  • Þórhallur Jóhannesson læknir

Neðri röð frá vinstri:

  • Einar Hjörleifsson Kvaran bankaritari
  • Kristín Ólafsdóttir læknir
  • Ágúst H. Bjarnason prófessor
  • Pétur Magnússon ráðherra
  • Jón Ólafsson Foss læknir
Image
Image
Stúdentar í Alþingisgarðinum árið 1912

Námsgreinar skilgreindar

Með reglugerð settri 9. október eru námsgreinar Háskóla Íslands skilgreindar og það skýrt nákvæmlega hvaða námsgreinar átti að kenna við hverja deild skólans og prófgreinum við embættispróf lýst í smáatriðum. Skólinn hafði því lítið svigrúm til breytinga á kennsluháttum eða kennslugreinum. Heimspekideild var að nokkru leyti undantekning því að hún var eina deild skólans sem bjó nemendur ekki undir embættispróf. Námi þar lauk með svokölluðu meistaraprófi í íslenskum fræðum, sem gaf engan sérstakan forgang að störfum hjá ríkinu.

Fyrsta Árbók Háskóla Íslands og fylgirit kemur út

Fyrsta Árbók Háskóla Íslands var gefin út þetta ár og fjallaði hún um fyrsta starfsár skólans. Hefð skapaðist fyrir því að gefa út fræðileg fylgirit henni samfara og var það fyrsta Stúfs saga eftir fyrsta rektor skólans, Björn M. Ólsen.

Fyrsta háskólaráðið

Á spjaldinu eru myndir af fulltrúum fyrsta háskólaráðs Háskóla Íslands. Myndin var útgefin á bréfspjaldi sem nú er kallað póstkort. Á myndinni eru:

  • Björn M. Ólsen, prófessor í heimspekideild, fyrsti rektor Háskóla Íslands 1911-1912.
  • Jón Helgason, prófessor í guðfræðideild og forseti deildarinnar. Háskólarektor 1914-1915.
  • Guðmundur Magnússon, prófessor í læknadeild og forseti deildarinnar. Háskólarektor 1912-1913.
  • Ágúst H. Bjarnason, prófessor í heimspekideild og forseti deildarinnar. Háskólarektor 1917-1918 og 1928-1929.
  • Lárus H. Bjarnason, prófessor í lagadeild og forseti deildarinnar. Háskólarektor 1913-1914.
Image
Fyrsta háskólaráð Háskóla Íslands: Björn M. Ólsen, Jón Helgason, Guðmundur Magnússon, Ágúst H. Bjarnason og Lárus H. Bjarnason

Bakhlið bréfspjaldsins

Á framhlið spjaldsins eru myndir af fyrsta háskólaráði Háskóla Íslands.

„Jeg óska þér gleðilegra jóla
frá Valtír“

Image
Bakhlið póstkorts. Á framhliðinni er mynd af fyrsta háskólaráði Háskóla Íslands