1927

Tillögur um nýjar og hagnýtar kennslugreinar

Offjölgun stúdenta er mikið til umræðu á árunum 1927-1928. Tillögur koma upp um að stofna til nýrra og hagnýtra kennslugreina sem tækju eitt ár, s.s. verslunar- og kennaranámskeiða, sem myndu veita straumi menntamanna inn í nýjar starfsstéttir.

Íþróttaiðkun stúdenta

Nokkrir áhugamenn um íþróttir á meðal stúdenta halda uppi fimleikaæfingum og kennslu í íslenskri glímu.

Alþingishúsið og næsta nágrenni

Alþingishúsið og næsta nágrenni þess. Á neðstu hæðinni hafði Háskóli Íslands aðsetur fyrstu þrjá áratugi sína. Myndin er úr Þjóðminjasafni

Image
Alþingishúsið og Dómkirkjan