1953

Sumarnámskeið í uppeldisfræðum haldið við HÍ

Sumarnámskeið haldið í uppeldisfræðum. 21 nemandi gekkst undir próf sem haldið var að því loknu. Samkvæmt fræðslulögum er próf í uppeldisfræðum skilyrði til að öðlast kennararéttindi. Tveimur árum áður hafði Matthías Jónasson hafið reglulega kennslu í uppeldis- og kennslufræðum. Greinarnar voru gerðar að skyldunámi fyrir kennaraefni í heimspekideild samkvæmt háskólareglugerð.