1955

774 stúdentar innritaðir

Við upphaf skólaárs 1955-1956 voru 774 stúdentar innritaðir til náms.

Háskóli Íslands stofnar handritaútgáfunefnd

Háskóli Íslands stofnar handritaútgáfunefnd árið 1955 og starfaði hún til ársins 1962 þegar Handritastofnun Íslands tók við hlutverki hennar. Á 51. fundi nefndarinnar, 22. maí 1967, skýrði formaður stjórnar frá því að fyrsta skóflustunga hefði verið tekin að Árnagarði þar sem Handritastofnun var ætlaður staður.

Læknadeild og verkfræðideild HÍ gerast aðilar að Kjarnafræðinefnd Íslands

Læknadeild og verkfræðideild gerast aðilar að Kjarnafræðinefnd Íslands. Bandaríkjastjórn gaf skólanum bókasafn um kjarnorkuvísindi sem var tekið til varðveislu í háskólabókasafni.

Verðandi húsmæðrakennarar marsera

„Háskólamars!“ Alexander Jóhannesson háskólarektor, sem átti hina bestu samvinnu við kennara og nemendur Húsmæðrakennaraskólans og tók iðulega þátt í veislufagnaði þeirra, innleiddi mars um ganga og anddyri Háskólans, að loknu borðhaldi, á árshátíð hinna verðandi húsmæðrakennara. Harmonika var í fararbroddi og sungið hástöfum „Öxar við ána“. Þessi mynd var tekin 1955-1956, í rektorstíð Þorkels Jóhannessonar.

Image
Verðandi húsmæðrakennarar marsera á árshátíð í Aðalbyggingu 1955

Skólastjóri og nemendur Húsmæðrakennaraskóla Íslands

Skólastjóri og nemendur Húsmæðrakennaraskóla Íslands á tröppum háskólans á brautskráningardegi vorið 1954.

  1. Fröken Helga Sigurðardóttir skólastjóri (d. 1962).
  2. Stefanía Árnadóttir, kennari við skólann 1950-1954.
  3. Áslaug Sigurgrímsdóttir, síðar kennari á Löngumýri og í Reykjavík.
  4. Sigríður Einarsdóttir, síðar kennari í Reykjavík.
  5. Dorothea Guðmundsdóttir, síðar m.a. kennari á Reykjanesi við Djúp og á Ísafirði.
  6. Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir, síðar m.a. kennari á Löngumýri og í Reykjavík.
  7. Jóhanna Ingólfsdóttir, síðar yfirmatráðskona á Landspítalanum.
  8. Erna Helga Þórarinsdóttir, síðar kennari á Löngumýri, í Reykjavík og Kópavogi.
  9. Sólveig Ásgeirsdóttir, síðar kennari á Ísafirði, í Hafnarfirði, Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ.
  10. Hanna Marta Kjeld, síðar kennari á Laugarvatni og í Hafnarfirði.
  11. Hjördís Hjörleifsdóttir, síðar kennari á Ísafirði og í Önundarfirði.
  12. Sigríður Kristjánsdóttir, kennari við skólann 1953-1958.
Image
Skólastjóri og nemendur Húsmæðrakennaraskóla Íslands á tröppum háskólans á brautskráningardegi vorið 1954

Sýning Húsmæðrakennaraskólans

Áhugasamar reykvískar húsmæður fylgjast með nýjungum á sýningu Húsmæðrakennaraskólans í kjallara háskólabyggingarinnar.

Image
Áhugasamar reykvískar húsmæður fylgjast með nýjungum á sýningu Húsmæðrakennaraskólans í kjallara háskólabyggingarinnar

Skólaslit Húsmæðrakennaraskóla Íslands 1950

Athöfnin fór fram í Hátíðasal háskólans eins og endranær. Skólastjórinn, fröken Helga Sigurðardóttir, sést hér brautskrá nemendur sína.

Image
Skólaslit Húsmæðrakennaraskóla Íslands 1950. Athöfnin fór fram í Hátíðasal háskólans eins og endranær. Skólastjórinn, fröken Helga Sigurðardóttir, sést hér brautskrá nemendur sína