1966

Háskólanefnd stofnuð

Háskólanefnd stofnuð þetta ár. Með skipan nefndarinnar voru í fyrsta sinn lögð drög að heildstæðri og almennri áætlunargerð um þróun og framtíð skólans. Með henni fylgdi Háskóli Íslands í fótspor annarra háskóla á Vesturlöndum og hafði nefndin til hliðsjónar áætlanir sem unnar höfðu verið við háskóla á Norðurlöndum þar sem slík áætlunargerð hófust á sjötta áratugnum.

Menntamálanefnd Stúdentaráðs hefur starfsemi

Menntamálanefnd Stúdentaráðs komið á fót þetta ár þar sem m.a. var talað um að rækta sjálfstæða hugsun í menntastarfi innan veggja háskólans. Árið 1970 hélt menntamálanefndin málstefnu um nýskipan náms í háskólanum og var síðasta tölublað Vettvangs Stúdentaráðs árið 1970 helgað henni.

Raunvísindastofnun tekur til starfa

Raunvísindastofnun Háskóla Íslands tekur til starfa 12. júlí þetta ár. Forveri hennar var Eðlisfræðistofnun háskólans. Byggingarframkvæmdir undir starfsemi stofnunarinnar við Dunhaga 3 hófust vorið 1964. Samkvæmt reglugerð var stofnuninni skipt í fjórar stofur, í eðlisfræði, efnafræði, stærðfræði og jarðeðlisfræði, og tók stofnunin til starfa þótt húsnæðið væri ekki fullbúið.

Forsaga málsins er sú að Bandaríkjastjórn ákvað að færa Háskóla Íslands fimm milljónir íslenskra króna að gjöf í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Ákveðið var í samráði við háskólarektor að fénu yrði varið til eflingar raunvísindarannsókna við Háskóla Íslands og að reisa byggingu sem rúmað gæti þá rannsóknastarfsemi. Var kostnaðurinn vegna hennar greiddur með umræddu gjafafé Bandaríkjastjórnar, fé frá Happdrætti Háskóla Íslands og úr ríkissjóði.

Image
Hús Raunvísindastofnunar. Myndin er tekin árið 1986.

Hátíðasalur Háskóla Íslands

Um 1960-1970, en á myndinni sést Hátíðasalur Háskóla Íslands tómur.

Ljósmyndari: Pétur Thomsen. Myndin er úr Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Image
Um 1960-1970, en á myndinni sést Hátíðasalur Háskóla Íslands tómur.