1991

Breytingar á stjórnsýslu HÍ

Lögum um Háskóla Íslands breytt þannig að háskólaráð réð framvegis framkvæmdastjóra stjórnsýslusviða til fimm ára í senn og rektor annað starfslið almennrar stjórnsýslu eftir því sem fé er veitt til. Deildarforsetar réðu starfslið einstakra deilda að höfðu samráði við rektor og eftir því sem fjárráð leyfðu. Markmiðið með breytingunni var að auka valddreifingu, skilvirkni og ábyrgð í stjórnsýslu.

Rannsóknastofa í kvennafræðum tekur til starfa við HÍ

Rannsóknastofa í kvennafræðum opnuð þann 25. ágúst þetta ár. Síðar varð hún Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræði.

Hagi við Hofsvallagötu

Háskóli Íslands kaupir húsið Haga við Hofsvallagötu 53. Þar fer fram kennsla og rannsóknir í lyfjafræði.

Image
Hagi, hús lyfjafræði við Háskóla Íslands

Háskólanetið nær til helstu bygginga austan og vestan Suðurgötu

Á árunum milli 1985 og 1990 voru vísar að Internetinu settir upp og lagnir lagðar á milli bygginga á háskólasvæðinu og fyrsta ljósleiðarastaðarnetið á Íslandi byggt upp. Árið 1991 náði netið til helstu bygginga austan og vestan Suðurgötu. Háskólanetið var frá upphafi og er reyndar enn byggt á Ethernet-tækni og var hraðinn í byrjun 10Mbs.

Image
Internettengd tölva á Þjóðarbókhlöðunni á tíunda áratug 20. aldar

Tölvukerfið Gegnir

Athöfn í Háskólabókasafni, 13. desember þetta ár, þegar tölvukerfi „Þjóðarbókhlöðusafna“ var gefið nafnið Gegnir. Háskólinn kostaði tölvukerfin Gegni og Greini fyrir Bókhlöðuna og lagði ljósleiðara til nettenginga um Háskólalóð. Hér kynnir Andrea Jóhannsdóttir Gegni fyrir starfsmönnum og gestum í Háskólabókasafni.

Talið frá vinstri:

  • Sveinbjörn Björnsson, háskólarektor
  • Einar Sigurðsson, háskólabókavörður
  • Finnbogi Guðmundsson, landsbókavörður
  • Andrea Jóhannsdóttir, bókasafnsfræðingur
  • Halldór Halldórsson, prófessor emeritus og höfundur nafnsins Gegnir
  • Guðrún Karlsdóttir, bókavörður

Myndin birtist í Árbók Háskóla Íslands háskólaárin 1994-1997.

Image
Athöfn í Háskólabókasafni, 13. desember þetta ár, þegar tölvukerfi „Þjóðarbókhlöðusafna“ var gefið nafnið Gegnir. Sveinbjörn Björnsson, háskólarektor; Einar Sigurðsson, háskólabókavörður; Finnbogi Guðmundsson, landsbókavörður; Andrea Jóhannsdóttir, bókasafnsfræðingur; Halldór Halldórsson, prófessor emeritus og höfundur nafnsins Gegnir; Guðrún Karlsdóttir, bókavörður

Félagsstofnun stúdenta

Stjórn, framkvæmdastjórar og deildarstjórar Félagsstofnunar stúdenta á níunda áratugnum. (myndin er sennilegast tekin árið 1986).

Fremst t.v. situr Eiríkur Ingólfsson, framkvæmdastjóri FS, og við hlið hans Halldór Birgisson, stjórnarformaður FS.

Standandi eru (f.v.):

  • Helgi Lárusson
  • Baldur Garðarsson
  • Dan Brynjarsson
  • Ómar Geirsson, fulltrúi stúdenta
  • Kristín Gísladóttir
  • Tryggvin Agnarsson
  • Sigrún Traustadóttir, fulltrúi stúdenta
  • Jónas Fr. Jónsson
Image
Stjórn, framkvæmdastjórar og deildarstjórar Félagsstofnunar stúdenta á níunda áratugnum. (myndin er sennilegast tekin árið 1986).

Bóksala stúdenta

Bóksalan er rekin af Félagsstofnun stúdenta. Hér sjást tveir viðskiptavinir á leið út úr Bóksölunni, sem þá var til húsa í Stúdentaheimilinu við Hringbraut.

Image
Tveir viðskiptavinir að ganga út úr Bóksölu stúdenta í Stúdentaheimilinu við Hringbraut