2003

Nemendum við Háskóla Íslands fjölgar

Nemendum við Háskóla Íslands hefur fjölgað um tæp fjörutíu prósent frá árinu 1998. Fjöldi skráðra nemenda háskólaárið árið 2003 var 8.225 og þar af voru konur 61,2%.

Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands sett á laggirnar

Sérstök stofnun fræðasetra Háskóla Íslands sett á laggirnar sem rannsókna- og þjónustustofnun sem heyrir undir háskólaráð. Stofnunin heldur utan um starfsemi fræða- og rannsóknasetra Háskóla Íslands á landsbyggðinni sem eru faglega sjálfstæðar einingar. Stofnunin er vettvangur samstarfsverkefna háskólans og sveitarfélaga, stofnana, fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga á landsbyggðinni.

Rannsóknasetur um smáríki opnað

Rannsóknasetur um smáríki formlega opnað við fjölmenna athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands 3. júlí. Setrið starfar innan Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og fer sameiginleg stjórn með málefni þeirra. Meginmarkmið setursins er að auka rannsóknir og fræðslu í smáríkjafræðum.

Endurskipulagning Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands hófst í kjölfar undirbúnings að stofnun Rannsóknaseturs um smáríki haustið 2001. Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun og vettvangur fyrir þverfaglegt samstarf á sviði alþjóðamála og smáríkjarannsókna.

Síðasta húsið í stúdentagarðahverfinu Ásgörðum tilbúið

Síðasta húsið í stúdentagarðahverfinu Ásgörðum tilbúið þetta ár. Fyrsta húsið í Ásgarðahverfinu var tekið í notkun árið 1993 en síðasta húsið kom svo í fulla notkun haustið 2003. Hverfið er að mestu ætlað einstaklingum og barnlausum pörum en þó eru íbúðir í Eggertsgötu 12 sem eingöngu eru ætlaðar fjölskyldum með 2 börn eða fleiri.

Image
Ásgarðar

Uglan, innri vefur Háskóla Íslands

Ný útgáfa af vefkerfi háskólans verður aðgengileg nemendum og starfsfólki HÍ þetta ár. Nýja vefkerfinu var gefið nafnið Ugla og fékk kerfið auk nýja nafnsins einnig nýja vefslóð www.ugla.hi.is. Uglan, innri vefur Háskóla Íslands, er mikilvægur upplýsingavettvangur og öflugt verkfæri starfsfólks, nemenda og kennara háskólans. M.a. á hvert námskeið við skólann, sem skráð er á Ugluna, sinn eigin kennsluvef. Kennsluvefurinn er upplýsingaveita og samskiptavettvangur kennara og nemenda.

Image
Uglan